Fótaaðgerðir hjá Vellíðan
Fótaaðgerðir framkvæmdar af löggiltum fótaaðgerðarfræðingi með áherslu á fagmennsku, vandvirkni og vellíðan. Meðferðirnar henta konum, körlum og börnum og eru aðlagaðar að þörfum hvers og eins.
Stofan mín
Stofan mín býður upp á faglega fótaaðgerðaþjónustu þar sem vellíðan, umhyggja, virðing og trúnaður eru í fyrirrúmi. Ég legg áherslu á einstaklingsmiðaða meðferð og tek hverjum og einum af nærgætni, fagmennsku og fullum trúnaði - – bæði börnum og eldra
Umhverfið á stofunni er notalegt og hlýlegt, þar sem markmiðið er að þú upplifir öryggi og ró frá fyrsta augnabliki. Með nútímalegum aðferðum og vönduðum vörum er stuðlað að heilbrigði fóta, nagla og húðar, hvort sem um er að ræða fyrirbyggjandi umönnun eða sértæka meðferð.
Markmið mitt er að bæta líðan, styðja við heilsu og veita þjónustu sem byggir á trausti, virðingu og trúnaði.

FungiSmart®
FungiSmart® býður upp á sérstaklega þróaða vörulínu fyrir fagfólk á sviði heilsu og fegurðar. Vandlega valdar vörurnar mynda heildstæða vörulínu sem hægt er að nota bæði hverja fyrir sig og samkvæmt mismunandi aðferðum. FungiSmart® vörur eru nýstárlegar og einkaleyfisvarðar. Um er að ræða einstaka vöru með áhugaverðan og öruggan verkunarmáta.







